Erlent

Styrkur al-Qaida mikill

Al-Qaida réðst á Bandaríkin fyrir tæpum sex árum.
Al-Qaida réðst á Bandaríkin fyrir tæpum sex árum.
Leyniþjónustumenn í Bandaríkjunum telja að al-Qaida hafi byggt upp styrk sem álíka mikill og hann var rétt fyrir hryðjuverkaárásirnar 2001, samkvæmt heimildum AP fréttastofunnar.

Þetta kemur fram í leyniskýrslu sem verður rædd á fundi, um mat á þjóðaröryggi, í Hvíta húsinu á morgun. Yfirskrift skýrslunnar er „Al-Qaida í betri stöðu fyrir hryðjuverkaárásir". Í skýrslunni er augum sérstaklega beint að frjálsum aðstæðum hryðjuverkahópa í Pakistan og reifaðar eru mögulegar ógnir sem steðja að Bandaríkjamönnum og bandaþjóðum þeirra.

Al-Qaida hefur sætt stöðugum árásum í sex ár sem ætlað hefur verið að uppræta samtökin. Fjölmargir embættismenn Bandaríkjastjórnar telja að engar vísbendingar séu um aðra árás á Bandaríkin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×