Erlent

Tveggja daga stúlkubarn grafið lifandi

Barnið fannst niðurgrafið á akri.
Barnið fannst niðurgrafið á akri. Mynd/ AFP
Tveggja daga gamalt stúlkubarn fannst á lífi eftir að hafa verið grafið lifandi á akri nærri Hyderabad í suðurhluta Indlands. Bóndi á nálægum bæ sá glitta í hendur barnsins og gerði viðvart.

Afi barnsins játaði að hafa reynt að myrða stúlkuna með því að grafa hana lifandi og hefur lögreglan handtekið hann. Hann gaf þá skýringu að hann ætti eftir að gifta fjórar dætur sínar og gæti ekki tekið ábyrgð á fimmtu stúlkunni, jafnvel þó hún væri einungis barnabarn. Ekki er ljóst hvort að móðir barnsins hafi gefið samþykki fyrir því að barnið yrði tekið frá henni.

Barnið var sent á spítala, en auk þess að hafa verið grafið lifandi hafði það ekki fengið næringu frá fæðingu. Stjórnvöld á Indlandi áætla að síðustu tvo áratugi hafi um 10 milljónir stúlkna verið myrtar af foreldrum sínum, annað hvort í móðurkviði eða stuttu eftir fæðingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×