Erlent

Fimmta hver bjór- og gosflaska keypt ólöglega í Danmörku

Fimmta hver bjór- og gosflaska í Danmörku er keypt á ólöglegan hátt samkvæmt skýrslu sem skattaráðuneyti Danmerkur kynnir í dag. Fram kemur á viðskiptafréttavefnum Börsen að Danir leggi enn þá mikið á sig til þess að komast hjá því að greiða skatta af þessum drykkjarvörum.

Þeir flytja töluvert af vörunum frá Þýskalandi eða kaupa á ólöglegan hátt af smyglurum. Athygli vekur þó að sala á bjór við landamæri Danmerkur í Þýskalandi hefur minnkað um 750 milljónir króna á sex árum en það helst í hendur við minnkandi bjórdrykkju Dana. Hins vegar hefur sala á gosdrykkjum á sama svæði ríflega tvöfaldast á sama tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×