FH burstaði HK - KR og ÍA á botninum 24. maí 2007 19:32 Helgi Sigurðsson fagnar sigurmarki sínu gegn KR Mynd/Daniel
FH-ingar eru enn með fullt hús stiga þegar þriðja umferðin í Landsbankadeildinni er langt komin. FH burstaði nýliða HK 4-0 í Hafnarfirði í kvöld, Breiðablik og Keflavík skildu jöfn 2-2 í Kópavogi, líkt og ÍA og Fram á Skaganum og þá unnu Fylkismenn 1-0 sigur á Víkingi í Fossvogi. KR hefur aðeins eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar eftir 2-1 tap fyrir Val á Laugardalsvelli. FH-ingar eru í kunnuglegri stöðu eftir þrjár umferðir í deildinni og hafa fullt hús stiga - 9 stig. Valur er í öðru sæti með 7 stig eftir tvo sigra i röð eftir að hafa lent undir í leikjunum. Fylkir er í þriðja sæti deildarinnar með 6 stig eftir sigurinn á Víkingi í kvöld og svo koma Víkingur, Keflavík og HK með fjögur stig. Breiðablik og Fram hafa hlotið 2 stig í 8. og 9. sæti og ÍA og KR-ingar eru á botni deildarinnar með eitt stig. Hér fyrir neðan eru nokkur atriði af Boltavaktinni í kvöld. Valsmenn eru komnir í 2-1 gegn KR á Laugardalsvelli. Helgi Sigurðsson skoraði mark Vals með skalla eftir hornspyrnu á 79. mínútu. Þetta er annað mark Helga í leiknum og hans þriðja í deildinni. Leikjunum fjórum sem hófust klukkan 19:15 er lokið. Íslandsmeistarar FH leggja HK 4-0 þar sem Tryggvi Guðmundsson (2), Arnar Gunnlaugsson og Matthías Guðmundsson skoruðu mörk Íslandsmeistaranna. ÍA og Fram skildu jöfn 1-1 á Skaganum og þar með fengu heimamenn sín fyrstu stig í deildinni. Árni Guðmundsson og Gísli Bjarnason skoruðu mörk ÍA en Jónas Grani Garðarsson og Ingvar Ólason skoruðu mörk Fram. Fylkir lagði Víking 1-0 í Fossvogi með marki Eskfirðingsins Vals Fannars Gíslasonar og loks skildu Breiðablik og Keflavík jöfn 2-2. Kristján Óli Sigurðsson og Magnús Gunnarsson skoruðu fyrir Blika en Marco Kotilainen og Guðjón Antoníusson skoruðu fyrir Keflavík. Dramatíkin ætlar að verða talsverð á lokamínútum leikjanna í kvöld. Framarar eru búnir að jafna metin í 2-2 gegn ÍA á Skaganum og Guðjón Antoníusson er búinn að jafna metin fyrir Keflvíkinga gegn Breiðablik í Kópavoginum. Rúnar Kristinsson er kominn inn sem varamaður í lið KR í skiptum fyrir Tryggva Bjarnason og er þar með að spila sinn fyrsta leik fyrir KR í 13 ár. Breiðablik er komið í 2-1 gegn Keflavík. Marco Kotilainen jafnaði metin fyrir Keflavík en skömmu síðar kom Magnús Páll Gunnarsson Blikum yfir á ný. Áður höfðu Blikar misnotað vítaspyrnu. Keflvíkingarnir hafa verið sterkari aðilinn í síðari hálfleik en eru enn undir. ÍA er komið í 2-1 gegn Fram á Skipaskaga þar sem hinn ungi Gísli Bjarnason skorað skömmu eftir að hafa komið inn sem varamaður. FH er komið í 4-0 gegn HK þar sem Arnar Gunnlaugsson var að skora sitt þriðja mark fyrir FH á leiktíðinni og Tryggvi Guðmundsson sitt annað mark í leiknum. Fylkismenn eru komnir í 1-0 gegn Víkingi í Fossvogi. Það var Valur Fannar Gíslason sem skoraði mark Árbæjarliðsins. Valur 1 - KR 1. Helgi Sigurðsson er búinn að jafna metin fyrir Val eftir um 38 mínútur í fyrri hálfleik. Valsmenn fengu aukaspyrnu úti á hægri kanti þar sem boltinn var skallaður út í teiginn til Helga sem skoraði með þrumuskoti. Annað mark hans fyrir Val á leiktíðinni. Jónas Grani Garðarsson er búinn að jafna metin í 1-1 fyrir Fram gegn ÍA á Skaganum. Jónas skoraði eftir varnarmistök heimamanna og kom markið á 63. mínútu. Guðmundur Benediktsson virðist hafa skilið skotskóna sína eftir heima í kvöld, því hann fór afar illa með dauðafæri fyrir Valsmenn á 29. mínútu þar sem hann skaut yfir mark KR. Skömmu síðar fengu KR-ingar ágætt færi en skutu framhjá. Fjörugur leikur í Laugardalnum þrátt fyrir erfið skilyrði. FH 2 - HK 0. Tryggvi Guðmundsson skoraði annað mark FH eftir undirbúning Arnars Gunnlaugssonar. Þetta er annað mark Tryggva á leiktíðinni og kom eftir um klukkustundar leik. KR er komið í 1-0 gegn Val á Laugardalsvellinum eftir um 22 mínútna leik. KR-ingar náðu snarpri sókn þar sem Björgólfur Takefusa vann boltann með mikilli baráttu og kom honum á Grétar Hjartarson. Grétar átti bylmingsskot í stöngina og Guðmundur Reynir Gunnarsson fylgdi því eftir í tómt markið. Rúnar Kristinsson er á bekknum hjá KR gegn Val í kvöld en í byrjunarliðinu eru tveir strákar sem voru ekki fæddir þegar hann lék fyrsta leik sinn með KR sumarið 1987. Þetta eru þeir Skúli Jón Friðgeirsson (fæddur 30. júlí 1988) og Guðmundur Reynir Gunnarsson (fæddur 21.janúar 1989). KR-ingar eiga enn eftir að vinna leik á þessu sumri og binda stuðningsmenn liðsins miklar vonir við komu Rúnars. Nú er kominn hálfleikur í fjórum fyrstu leikjunum í kvöld. FH hefur 1-0 yfir gegn HK, ÍA er yfir 1-0 gegn Fram, Breiðablik hefur yfir 1-0 gegn Keflavík og markalaust er hjá Víkingi og Fylki. Staðan er enn jöfn eftir fyrstu 10 mínúturnar í leik Vals og KR á Laugardalsvelli, en þar eru Valsmenn að ranka við sér eftir góða byrjun KR og hafa átt tvö ágæt færi. KR-ingar mæta dýrvitlausir til leiks í Laugardalnum og í tvígang á fyrstu fimm mínútum leiksins hefur Kjartan Sturluson í marki Vals þurft að taka á honum stóra sínum. Skagamenn hafa náð forystu gegn Fram á Skipaskaga eftir 39 mínútur. Það var Árni Guðmundsson sem skoraði mark ÍA eftir hornspyrnu, en nú er kominn hálfleikur á Skaganum. Útsending Sýnar frá leik Vals og KR í Laugardalnum hófst klukkan 19:45. Þar þurfa bæði lið nauðsynlega á stigum að halda. Teitur Þórðarson staðfesti að Rúnar Kristinsson yrði í leikmannahópi KR-inga og verður hann væntanlega á bekknum. Rétt eins og á öðrum völlum í kvöld, er hvassviðri og kuldi að setja sinn svip á stemminguna. Fátt markvert hefur gerst á fyrstu 20+ mínútunum í leik ÍA og Fram á Skaganum, en þar er mjög hvasst og skilyrði ekkert sérstök til knattspyrnuiðkunar. Sömu sögu er að segja af leik Víkings og Fylkis í Fossvogi. Víkingsliðið hefur spilað öllu betur, en gestirnir hafa verið duglegri við að skjóta á markið. Hvorugt lið hefur þó náð að skapa sér góð marktækifæri. Breiðablik náði forystu gegn Keflavík á 9. mínútu með marki Kristjáns Óla Sigurðssonar. Blikar hafa verið sterkari aðilinn fyrstu 20 mínúturnar í leiknum. Íslandsmeistarar FH voru aðeins fjórar mínútur að skora gegn nýliðum HK, en það var Matthías Guðmundsson sem skoraði mark Íslandsmeistaranna. Bjarki Gunnlaugsson fór meiddur af velli á 19. mínútu í liði FH.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn Uppeldiskerfi argentínska fótboltans níðist á börnum Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Fleiri fréttir Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Oliver til FH Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Einum mánuði yngri en Eiður Smári Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Uppgjör og viðtöl: Valur – Keflavík 1-1 | Tvö lið sem lengir eftir sigri Sjá meira