Erlent

Blair fagnar heimastjórn -iðrast einskis

Tony Blair fagnar samkomulaginu í Stormont
Tony Blair fagnar samkomulaginu í Stormont

Heimastjórnin  tekur til starfa á ný á Norður-Írlandi í dag þegar hinir fyrrum andstæðingar Ian Paisley og Martin McGuinnes sverja embættiseiða sína í Stormont kastala. Það eru næstum fimm ár síðan heimastjórn á Norður Írlandi var aflögð og málefni landshlutans sett undir hatt ráðherra í London.

 

Paisley, sem er formaður flokks sambandssinna sagðist bjartsýnn á framhaldið og að Norður-Írland væri loks komið á framfarabrautina. McGuinness, leiðtogi Sinn Fein tók í svipaðan streng og sagðist þess fullviss að þessir fornu féndur gætu starfað saman í sátt og samlyndi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×