Erlent

Lögreglan segist ekki viss um hvort Maddy sé á lífi

Enn hefur ekkert spurst til Maddy, þriggja ára telpu, sem hvarf í Portúgal.
Enn hefur ekkert spurst til Maddy, þriggja ára telpu, sem hvarf í Portúgal. MYND/AP

Lögreglan í Portúgal segist ekki viss um hvort Madeilene McCann, þriggja ára telpan sem talið er að hafi verið rænt á sumardvalarstað í landinu á fimmtudag, sé enn á lífi.

Lögregluforinginn sem fer með stjórn rannsóknarinnar segir mjög erfitt að svara þeirri spurningu hvort hann telji að stúlkan sé enn á lífi. Að sögn hans hefur lögreglan engar vísbendingar sem gefið gætu til kynna hvort stúlkan sé lífs eða liðin.

Móðir stúlkunna kom fram í sjónvarpi í gær og grátbað mannræningjann um að hlífa dóttur sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×