Erlent

Wolfowitz braut reglur

Það hitnar enn í kolunum undir Paul Wolfowitz, forseta Alþjóðabankans sem sakaður er um að hygla kærustu sinni í starfi. Rannsóknarnefnd á vegum bankans hefur komist að þeirri niðurstöðu að forsetinn hafi gerst sekur um hagsmunaárekstur og að hann hafi brotið reglur bankans. Í skýrslu nefndarinnar segir hins vegar ekkert um hvort og þá hvernig Wofowitz verði refsað fyrir athæfið.

 

Wolfowitz, sem er fyrrum aðstoðar varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og einn af skipuleggjendum Íraksstríðsins, fær nokkra daga til að bregðast við niðurstöðum rannsóknarinnar en hann er undir miklum þrýstingi um að segja af sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×