Erlent

Grafhýsi Heródesar fundið

MYND/AFP

Ísraelskur fornleifafræðingur hjá Hebreska háskólanum í Jerúsalem segist hafa fundið gröf Heródesar konungs. Grafhýsið er á hæð sunnan við Jerúsalem en konungurinn lét byggja borgina á sínum tíma. Konungurinn mun vera grafinn á stað sem nefndur er Herodium en þar lét hann reisa höll sína þegar hann var uppi. Til stóð að kynna fornleifafundinn með pompi og pragt í dag, en ísraelska blaðið Haaretz komst á snoðir um fundinn og birti frétt um málið í gær.

 

Það hefur verið trú manna til langs tíma að Heródes sé grafinn á Herodium, en áratuga fornleifarannsóknir hafa ekki sýnt fram á það, fyrr en nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×