Erlent

Björgunarbúnaðurinn er í Írak

Björgunar- og hreinsunarstörf í kjölfar stormsveipanna sem gengu yfir Kansas og urðu ellefu manns að bana ganga illa, vegna þess að björgunarbúnaðurinn er í Írak. Þetta fullyrðir Kathleen Sebelius, ríkisstjóri í Kansas. Hún segir að um helmingur allra vörubíla sem áður voru í ríkinu á vegum hersins hafi verið fluttir úr landi.

 

Foringi heimavarnaliðsins tekur undir með ríkisstjóranum og segir að heimavarnarliðið hafi verið vanbúið fyrir herförina í Írak og nú sé staðan enn verri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×