Erlent

Reyna að koma í veg fyrir að hvalveiðibanni verði aflétt

Ráðherrar í bresku ríkisstjórninni leggja nú allt kapp á að koma í veg fyrir að hvalveiðibanni verði aflétt á ársfundi alþjóða hvalveiðiráðsins sem hefst í dag í Alaska. Bretar hafa fengið þjóðir á borð við Króatíu, Kýpur og Grikkland í lið með sér á ráðstefnunni en þeir óttast að hvalveiðibanni verði aflétt.

 

Það eru Japanir sem fara fremstir í flokki þeirra sem vilja aflétta banninu og hafa Bretar sakað þá um að múta þjóðum með þróunaraðstoð til þess að greiða atkvæði með tillögum þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×