Erlent

Sex látnir í umferðarslysi fyrir utan London

Sex létust í bílslysi á M25 hraðbrautinni fyrir utan London í nótt. Dráttarbíll sem var að draga litla rútu keyrði aftan á vörubíl með þessum hrikalegu afleiðingum. Talið er að farþegar rútunnar hafi verið í dráttarbílnum og ljóst er að þeir eru á meðal hinna látnu. Ekkert er vitað um orsakir slyssins að svo stöddu, en umferð var lítil á hraðbrautinni þegar það átti sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×