West Ham lagði Arsenal á útivelli 7. apríl 2007 15:56 Brynjar Gunnarsson er hér í baráttu við Mark Gonzales, leikmann Liverpool, í leiknum í dag. MYND/Getty
Íslendingaliðið West Ham vann frækinn og jafnframt gríðarlega mikilvægan sigur á Arsenal á Emirates-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni í dag og er liðið nú aðeins tveimur stigum frá því að komast úr fallsæti. Brynjar Björn Gunnarsson skoraði mark Reading í 2-1 tapi liðsins gegn Liverpool en hann og Ívar Ingimarsson léku báðir allan leikinn fyrir lið sitt í dag. Það var framherjinn Bobby Zamora sem skoraði sigurmark West Ham á 47. mínútu gegn Arsenal í dag en þrátt fyrir mikla pressu heimamanna í síðari hálfleik náðu þeir ekki að finna leið framhjá Robert Green í marki gestanna. West Ham er nú komið með 29 stig í næst neðsta sæti deildarinnar en þeirra helstu keppinautar í botnbaráttunni, Sheffield Utd. tapaði á heimavelli fyrir Newcastle og er einnig með 29 stig. Charlton er í 17. sæti með 31 stig og þá er Wigan fjarri því að vera sloppið með 33 stig, en liðið tapaði 3-1 fyrir Bolton í dag. Úrslitin eru mikil vonbrigði fyrir Arsene Wenger og lærisveina hans en á sama tíma og þeir misstu af þremur dýrmætum stigum sigraði Liverpool lið Reading á útivelli, 2-1. Alvaro Arbeloa kom Liverpool yfir með sínu fyrsta marki fyrir félagið en Brynjar Björn Gunnarsson jafnaði fyrir Reading á 47. mínútu. Hollenski framherjinn Dirk Kuyt var hetja gestanna með því að skora sigurmarkið á 86. mínútu. Önnur úrslit í leikjum dagsins voru að Aston Villa vann mikilvægan útisigur á Blackburn, 2-1, og þá burstaði Middlesbrough lið Watford á heimavelli sínum, 4-1, þar sem Mark Viduka skoraði tvö mörk.
Enski boltinn Mest lesið Íslenskur doktorsnemi Englandsmeistari: Rannsakar prótín og skorar af línunni í Oxford Sport Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Enski boltinn Sjáðu mörkin úr endurkomu Vestra og þrumufleyg Hallgríms Íslenski boltinn Uppgjörið: FHL - Þróttur 0-4 | Þróttarar á toppinn eftir stórsigur fyrir austan Íslenski boltinn Aron Einar tók þátt í að binda endi á langa bikarbið Al-Gharafa Fótbolti Bastarður ráðinn til starfa Fótbolti Ítalíumeistararnir að landa De Bruyne Fótbolti Elsti leikmaðurinn til að fá MVP atkvæði Körfubolti Garnacho ekki í hóp Enski boltinn Ísak Bergmann hljóp mest allra Fótbolti Fleiri fréttir Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Garnacho ekki í hóp Ætlar að biðja stuðningsmennina afsökunar eftir lokaleikinn Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Salah bestur og Gravenberch besti ungi Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Sjá meira