Erlent

Skotfæraverslun sprakk í Kabúl

AFP
Minnst fjórir fórust og nokkrir særðust illa í risasprengingu í skotfæraverslun í Kabúl, höfuðborg Afganistan í morgun. Margar nærliggjandi verslanir og hús skemmdust í sprengingunni sem skildi eftir sig þriggja metra breiðan gíg. Ekki lítur út fyrir að sprengingin hafi verið verk hryðjuverkamanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×