Erlent

Sjö fórust þegar hús féll saman

Sjö fórust og sex til viðbótar slösuðust þegar hús féll saman í framkvæmdum í vesturhluta Mumbai á Indlandi í gærkvöldi. Allir sem létust voru verkamenn sem störfuðu við framkvæmdirnar. Ekki er ljóst hvað varð til þess að húsið féll saman en slík slys eru tiltölulega algeng á Indlandi. Í síðasta mánuði létust 15 verkamenn þegar vöruhús í byggingu féll saman í Mumbai. Mikil eftirspurn eftir fasteignum á Indlandi hefur bitnað á öryggi undanfarin ár og er það hluti ástæðunnar fyrir því hversu algeng slys af þessu tagi eru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×