Erlent

Blair mætir andstöðu flokkssystkina

Trident kafbátur
Trident kafbátur Getty Images

Búist er við því að Tony Blair forsætisráðherra Bretlands mæti harðri andstöðu flokkssystkina sinna vegna áætlunar hans um að veita 20 milljörðum punda til þess að endurnýja Trident-kjarnorkukafbáta. Blair hefur sagt það nauðsynlegt fyrir Breta að viðhalda kjarnavopnabúri sínu til að mæta hugsanlegum ógunum.

Þrátt fyrir að búist sé við því að allt að 80 þingmenn Verkamannaflokksins kjósi gegn stjórnarfrumvarpi Blair er talið nær útilokað að það falli í þinginu, þar sem þingmenn Íhaldsflokksins styðja það. Málið verður rætt í þinginu í dag og kosið um það í kvöld. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að þrír af fjórum kjarnorkukafbátum verði endurnýjaðir á næstu 17 árum. Andstæðingar frumvarpsins saka Blair um kaldastríðs hugsunarhátt og segjast ekki geta séð fyrir sér neinar hugsanlegar ógnir sem kjarnavopn geti varið Breta fyrir í fyrirsjáanlegri framtíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×