Erlent

Vill að rætt sé við uppreisnarmenn

AP

Tarek al-Hahsemi, varaforseti Íraks hvetur til þess að stofnað verði til viðræðna við uppreisnarhópa í landinu og sú aðferð notuð til að reyna að koma á friði. Hann sagðist í samtali við BBC trúa því að hægt væri að ræða við alla þessa hópa, nema kannski al-Kaída, en þeir væru hluti af samfélaginu í Írak. Þá sagði hann veru herliðs Bandaríkjamanna og annara þjóða í landinu særa stolt þjóðarinnar og að fram þurfi að koma fljótt áætlun fyrir brotthvarf þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×