Erlent

Mugabe hótar að senda sendiherra úr landi

Robert Mugabe
Robert Mugabe Getty Images

Robert Mugabe forseti Simbabve hótar nú að senda alla sendiherra vesturvelda úr landi og sakar þá um að ýta undir að framið verði valdarán í landinu.

Mugabe hafði áður bannað leiðtogum stjórnarandstöðunnar í landinu að fara úr landi en þeir þurfa nú að svara til saka fyrir að hafa efnt til fjöldafunda, sem eru bannaðir með lögum í landinu. Hann segir að ekki verði hikað við að reka þá úr landi sem styðji við bakið á stjórnarandstöðunni. Mugabe segist hafa kallað saman sendiherrana og fullvissað þá um þessa afstöðu sína.

Mugabe hefur mætt mikilli alþjóðlegri andstöðu eftir nýjustu aðgerðir sínar gegn stjórnarandstöðunni en í síðustu viku voru nokkrir leiðtogar stjórnarandstöðunnar handteknir og beittir ofbeldi í varðhaldi. Mugabe hefur staðhæft að þeir njóti fjárhagsstuðnings vesturvelda.

Margir stjórnmálaskýrendur spá því nú að dagar Mugabe í forsetastól verði brátt taldir, en Mugabe sem er 83 ára gamall hefur farið með völdin í landinu síðan 1980. Efnahagsástandið hefur farið mjög halloka í landinu og þar mælist verðbólga nú yfir 1700 prósentum og atvinnuleysi í um 80 prósentum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×