Erlent

WWF óttast um fljót

Við Ganges-fljót á Indlandi
Við Ganges-fljót á Indlandi Getty Images

Sum af helstu stórfljótum heims eru í bráðri hættu vegna þess hve mikið er búið að virkja í þeim, sigla á þeim og menga þær. Þetta kemur fram í skýrslu World Wildlife Fund sem út kom í gær. Af tíu fljótum sem talin eru upp í skýrslunni má nefna Yangtse og Mekong í Kína, Ganges á Indlandi, Dóná og Rio Grande. Í skýrslunni segir að heimsbyggðin standi frammi fyrir skorti á ferskvetni og segja þá hættu að minnsta kosti jafn alvarlega og hlýnun loftslags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×