Erlent

Danskir piltar eyða meira

Danskir unglingspiltar eyða meiri peningum í að kaupa sér föt en jafnöldrur þeirra af hinu kyninu. Þetta kemur fram í fríblaðinu 24 timer þennan morguninn. Í úrtakshóp sem kannaður var eyddu 42 prósent drengja á aldrinum 13 til 16 ára meira en þúsund dönskum krónum í föt á mánuði á meðan einungis 27 prósent stúlknanna fóru með sömu upphæð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×