Warnock sendir Southgate tóninn 19. mars 2007 19:27 Neil Warnock er æfur út í Gareth Southgate hjá Middlesbrough NordicPhotos/GettyImages
Neil Warnock, knattspyrnustjóri Sheffield United, sendi kollega sínum hjá Middlesbrough tóninn í fjölmiðlum í dag og sagði vinnubrögð Gareth Southgate bera vott um vanvirðingu í garð andstæðinga Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni. Æsingur Warnock kemur í kjölfar þess að Southgate ákvað að hvíla nokkra af lykilmönnum sínum í leik gegn Manchester City í deildinni á dögunum til að spara þá fyrir einvígið gegn Manchester United í enska bikarnum í kvöld. Manchester City er í fallbaráttu líkt og Sheffield United og Warnock fullyrðir að Southgate hafi verið að gera Stuart Pearce greiða með því að tefla fram veikara liði í deildinni. "Þetta er hneyksli. Ég veit að Southgate og Pearce eru vinir og ég veit að Boro er að fara spila við Manchester United - en ég væri til í að sjá hvernig stemmingin væri í herbúðum Boro ef þeir myndu tapa sex leikjum í röð. Það er glórulaust að lið eins og Middlesbrough skuli vanvirða lið eins og Sheffield United og Charlton sem eru í fallbaráttu með því að tefla ekki fram sínu sterkasta liði gegn Manchester City. Þetta eru vægt til orða tekið ógeðsleg vinnubrögð," sagði Warnock í samtali við Sky. Southgate ákvað að hvíla þá Viduka, Arca og Woodgate fyrir leikinn gegn City í deildinni og Warnock segir að það hafi verið nóg til að gefa jafnvel Manchester City möguleika á sigri - en City var einmitt búið að tapa sex leikjum í röð fyrir leikinn. "Ég myndi einmitt taka þessa þrjá leikmenn út ef ég mætti velja um að taka þrjá leikmenn út úr liði þeirra áður en þeir mættu mínu liði - og það að þeir skuli ekki hafa spilað á móti City lætur mig fá óbragð í munninn. Gareth er bara ungur knattspyrnustjóri og hann á eftir að læra af mistökum sínum. Þeir eiga að spila við West Ham á laugardaginn og ætli hann hvíli þá ekki sína bestu menn aftur þar til að gera Alan Curbishley vini sínum greiða. Þeir virðast vera að reyna að tjalda öllu til þess að vinna Manchester United í bikarnum - og ég vona að þeir fái allt sem þeir eiga skilið út úr þeim leik," sagði Warnock.
Enski boltinn Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Sjá meira