Erlent

Stungu pilt til bana

Getty Images

Fimm ungmenni eru nú yfirheyrð af lögreglu í London grunuð um aðild að því að stinga 16 ára pilt til bana í Hammersmith-hverfi borgarinnar í gærkvöld. Pilturinn lést á sjúkrahúsi í nótt. Lögregla hvetur vitni að árásinni til að hafa samband. Í síðasta mánuði voru þrír táningar skotnir til bana í London í þremur aðskildum tilvikum og alvarlegar árásir hafa verið algengar upp á síðkastið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×