Erlent

Íranir auðga úran ótrauðir

Getty Images

Ahmadinejad Íransforseti segir að ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gegn Íransstjórn verði ekkert annað en marklaust plagg og að Íranir muni halda kjarnorkuáætlunum sínum til streitu eins og ekkert hefði í skorist.

Sex stórveldi hafa komið sér saman um drög að ályktun sem að líkindum verður lögð fyrir Öryggisráðið í næstu viku sem miðar að því að banna vopnainflutning til landsins auk þess sem erlendar eignir embættismanna og fyrirtækja sem tengjast kjarnorkuvinnslu landsins verða frystar þar til Íranir láta af auðgun úrans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×