Erlent

Að ná samkomulagi um viðskiptaþvinganir á Íran

Nýr kjarnorku-peningaseðill frá Íran
Nýr kjarnorku-peningaseðill frá Íran AP

Sendiherrar stórveldanna Bandaríkjanna, Bretlands, Rússlands, Kína, Frakklands og Þýskalands hafa komist að samkomulagi um grundvallaratriði í nýjum viðskiptaþvingunum á hendur Írönum. Búist er við því að uppkast að ályktun þessa efnis verði lagt fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á fundi í dag. Samkvæmt heimildum BBC innihalda þvinganirnar bann á vopnaútflutning frá Íran og að eignir helstu embættismanna landsins verði frystar. Íranir hafa haldið því statt og stöðugt fram að kjarnorkuáætlanir þeirra séu friðsamlegar en vesturveldin gruna þá um að reyna að þróa kjarnavopn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×