Erlent

Plægði knattspyrnuvöll í hefndarskyni

Serbneski knattspyrnumaðurinn Slavomir Milnovich brást ókvæða við þegar þjálfarinn rak hann úr liðinu fyrir slaka frammistöðu. Hann hélt þegar heim á sveitabæ fjölskyldunnar og sótti þangað stóru dráttarvélina hans föður síns. Með henni plægði hann svo upp allan knattspyrnuvöll félagsins í hefndarskyni. Þetta hefur Bændablaðið eftir systurblaði sínu í Danmörku, Landbrugsavisen, en bæði blöðin fylgjast grannt með jarðabótum, hvar sem þær eru unnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×