Tsvangirai verði leiddur fyrir rétt 13. mars 2007 06:56 Morgan Tsvangirai Getty Images
Hæstiréttur í Simbabve hefur krafist þess að annaðhvort verði Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðunnar leiddur fyrir rétt eða hann látinn laus. Tsvangirai var handtekinn á sunnudag þegar óeirðalögregla leysti upp útifund í Harare, höfuðborg Simbabve. Lögmaður hans hefur haldið því fram að hann hafi verið beittur ofbeldi í varðhaldi. Þá segir lögmaðurinn að honum hafi verið meinað að hitta skjólstæðing sinn, þrátt fyrir dómsúrskurð þar um. Tsvangirai er leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokks landsins og hefur verið helsti andstæðingur Roberts Mugabe forseta sem hefur meðal annars bannað flokki hans að taka þátt í kosningum í landinu. Dómari í hæstarétti fyrirskipaði einnig að Tsvangirai ætti þegar að fá læknisaðstoð, þyrfti hann á henni að halda og leiddur fyrir rétt strax í dag ellegar látinn laus. Alþjóðasamfélagið hefur fordæmt handtöku Tsvangirai og Bandaríkin kröfðust þess þegar í gær að þeir sem voru handteknir við friðsamleg og lýðræðisleg mótmæli yrðu látnir lausir. Upplýsingamálaráðherra landsins hins vegar hélt því fram í gær að mótmælendur hefðu ráðist að lögreglumönnum með vopnum og framið skemmdarverk. Robert Mugabe hefur verið forseti Simbabve frá árinu 1980, hann er 83 ára gamall en sýnir engin merki þess að hann ætli að sleppa hörðu taki sínu af stjórn landsins. Óánægja með stjórnarhætti hans hefur magnast undanfarin misseri, aðallega vegna gríðarlega slæms efnahagsástands en stór hluti þjóðarinnar er atvinnulaus og verðbólga hefur mælst 1700% sem er það hæsta í heiminum.
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent Eric Dane er látinn Lífið „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Fleiri fréttir „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Sjá meira