Erlent

94 fangar látnir lausir

Mynd/Teitur

Lögregla lét í gær lausa 94 sem handteknir voru við óeirðirnar vegna Ungdómshússins á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Þetta var um helmingur þeirra sem enn sátu í fangelsi. Lögregla telur ekki lengur hættu á að upp úr sjóði og því er fólkinu sleppt. Þó segir lögreglan að ef fólkið verði aftur uppvíst af því að taka þátt í óeirðum verði það umsvifalaust lokað aftur inni. Nær 100 sitja enn í fangelsi og er búist við því að krafist verði framlengingar á gæsluvarðhaldsúrskurði yfir einhverjum þeirra á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×