Erlent

Calderon gagnrýndi Bush harðlega

AFP
Felipe Calderon forseti Mexíkó gagnrýndi George Bush forseta Bandaríkjanna harkalega á fundi þeirra fyrir að gera of lítið til að stemma stigu við ólöglegum fólksflutningum yfir landamæri ríkjanna og fyrir að mistakast í því verkefni að minnka ásókn Bandaríkjamanna í ólögleg fíkniefni. Calderon minnti Bush á að hann hefði eitt sinn sagt að engin milliríkjasamskipti væru mikilvægari en þau milli Mexíkó og Bandaríkjanna. Hann sagði greinilegt að sjónarhorn forsetans hefði breyst eftir hærðilega atburði 11. september 2001.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×