Erlent

Átta skotnir í Tælandi

AFP
Átta voru skotnir til bana í smárútu í suðurhluta Tælands í morgun. Setið var um rútuna og segir lögregla líklegt að múslimskir uppreisnarmenn hafi verið að verki. Minnst tvöþúsund hafa dáið í Suður-Tælandi á undanförnum þremur árum í aðgerðum uppreisnarmanna. Meirihluti íbúa suðurhlutans eru múslimar og eiga íbúar þessara héraða meira sameiginlegt með íbúum Malasíu fyrir sunnan en löndum sínum fyrir norðan sem flestir eru búddatrúar. Sprengjuárásir eru nær daglegt brauð og hafa uppreisnarmenn gert yfirvöld, lögreglumenn, hermenn, kennara og stundum óbreytta borgara að skotmarki sínu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×