Erlent

Heiðruð fyrir að hjálpa gyðingum

Gettóinu í Varsjá í desember 1942
Gettóinu í Varsjá í desember 1942 Getty Images

Pólsk kona sem hjálpaði til við að bjarga lífi 2500 gyðingabarna í síðari heimstyrjöldinni verður heiðruð af pólska þinginu. Konan, Irena Sendlerowa er orðin 97 ára gömul en hún er fyrrverandi félagsþjónustustarfsmaður. Hún skipulagði björgun barna úr gettóinu í Varsjá með hjálp andspyrnuhers Pólverja. Hún var þá handtekinn og pyntuð af Gestapo-leynilögreglu Nasista. Hún hefur ekki hlotið frægð fyrir afrek sín fyrr en nú, þegar hún býr á hjúkrunarheimili og nálgast að verða hundrað ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×