Erlent

Verkfall hjá British Airways í næstu viku

Flugvél British Airways á Keflavíkurflugvelli.
Flugvél British Airways á Keflavíkurflugvelli. MYND/Víkurfréttir - Hilmar Bragi

Flugliðar British Airways ætla í tveggja daga verkfall í lok mánaðarins eftir að slitnaði upp úr viðræðum milli flugfélagsins og stærsta starfsmannafélags þess. Gengi hlutabréfa félagsins féll í kjölfar fréttanna. Launamál og veikindaréttindi eru meðal þrætuepla.

11 þúsund af 15 þúsund flugliðum þessa þriðja stærsta flugfélags Evrópu eru í starfsmannafélaginu sem ætlar í tveggja sólarhringa verkfall á þriðjudag og miðvikudag. Félagið segist samt enn opið fyrir því að semja ef flugfélagið kemur til móts við kröfur starfsmanna.

Búist er við að flugfélagið geti tapað allt að 13 milljörðum íslenskra króna í verkfallinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×