Öskubuskuævintýrið Paul Scholes 18. janúar 2007 20:34 Lífið var sannarlega enginn dans á rósum hjá Paul Scholes á unglingsárunum NordicPhotos/GettyImages
Breska dagblaðið The Sun birti í dag áhugaverða grein um það hvernig lítil tilviljun kann að hafa ráðið miklu um það að miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United varð sú stórstjarna sem hann er í dag. The Sun birtir þar viðtal við bílstjóra nokkurn sem var í gullaldarliði Manchester United í kring um árið 1990 þar sem leikmenn á borð við Scholes, Ryan Giggs, David Beckham, Nicky Butt, Robbie Savage og Neville bræður unnu allt sem hægt var að vinna sem unglingaliðsmenn Manchester United.Eins dauði... George Switzer segir í viðtalinu að það eina staðan sem ekki var vel mönnuð í liðinu í þá daga hafi verið staða vinstri bakvarðar. Paul Scholes var alltaf lítill eftir aldri og þjáðist af astma og var því gjarnan settur í stöðu bakvarðar, á meðna Switzer spilaði á miðjunni. Einn daginn meiddist Switzer og þá var brugðið á það ráð að setja Scholes á miðjuna - en hann hafði þá verið kominn á varamannabekkinn.Ferguson kom auga á hæfileika Scholes Afganginn af þessari sögu þekkja líklega flestir, en Scholes hefur án efa verið einn besti miðjumaður sem Englendingar hafa átt á síðasta áratug. "Scholes var alltaf lítill eftir aldri og svo átti hann erfitt með að anda, þannig að hann átti erfitt uppdráttar. Alex Ferguson sá engu að síður eitthvað sérstakt í fari hans og í dag er auðvelt að sjá hvað það var. Það tognaði heldur betur úr Scholes í framhaldi af þessu og hann hefur líka átt frábæran feril allar götur síðan," sagði Switzer. Butt var bestur "Nicky Butt var oftar en ekki besti leikmaðurinn í þessu liði og hann skyggði oft á menn eins og Beckham. Hann minnti þá á sjálfan Bryan Robson. Beckham var aldrei neitt áberandi góður, en hann var samt sterkur leikmaður sem bætti sig mikið eins og allir sjá í dag," sagði Switzer og bætti við að þessi árgangur leikmanna United hefði verið einstaklega einbeittur og ákveðinn í að ná langt. "Það var hver einasti maður í hópnum ákveðinn í að spila með aðalliðinu einn daginn og meira að segja menn eins og Robbie Savage, sem fengu ekki tækifæri með aðalliði United, náðu að skapa sér gott nafn með öðrum liðum." En er Switzer þá ekki bitur að hafa ekki náð í aðalliðið sjálfur?Sonurinn æfir með City "Ég verð að viðurkenna að ég var eyðilagður þegar Alex Ferguson sagði mér að samningur minn við félagið yrði ekki endurnýjaður, því þá var ég búinn að vera hjá United í tíu ár. Ferguson var samt mjög góður við mig, gaf mér símanúmerið hjá sér og sagði mér að ég mætti ræða við hann hvenær sem ég vildi," sagði Switzer sem gerir það gott sem atvinnubílstjóri í dag og á ungan son sem æfir með erkifjendunum í Manchester City. "Ég held alltaf með United, en ef syni mínum gengur vel hjá City - get ég ekki annað en samglaðst honum."
Enski boltinn Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Fótbolti Fleiri fréttir McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Sjá meira