Erlent

Flak indónesísku flugvélarinnar loks fundið

Hernaðaryfirvöld í Indónesíu hafa skýrt frá því að flak flugvélar sem fórst í Indónesíu á nýársdag sé loks fundið. Það voru fiskimenn sem fundu hluta af flakinu á hafsbotni nærri eyjunni Sulawesi en vélin var á leið þangað.

Meðal þess fyrsta sem fannst var hluti úr stéli flugvélarinnar og sætisbak en víðtæk leit hefur staðið yfir að vélinni, sem var af gerðinni Boeing 737, allt frá því samband rofnaði við hana á nýársdag. 102 voru í vélinni en enginn hefur fundist á lífi og ólíklegt er talið að einhver hafi komist lífs af. Flugvélin var á leið frá eyjunni Jövu til Sulawesi á vegum lággjaldaflugfélagsins Adam Air.

Eftir að stjórnvöld í Indónesíu slökuðu á reglum komu mörg lággjaldaflugfélög inn á flugmarkaðinn þar í landi og almennt þykir öryggi ábótavant hjá þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×