Erlent

Bush hefði viljað meiri virðingu yfir aftöku Saddam

Bush og Merkel hétu einnig nánari samvinnu landa sinna í loftlagsmálum og við að reyna að koma á friði í Mið-Austurlöndum.
Bush og Merkel hétu einnig nánari samvinnu landa sinna í loftlagsmálum og við að reyna að koma á friði í Mið-Austurlöndum. MYND/AP

Bush Bandaríkjaforseti hefði viljað að meiri virðing hefði verið yfir aftöku Saddam Hussein. Bush lét þessi orð falla á blaðamannafundi í Þýskalandi þar sem hann fundar nú með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands.

Myndbrot sem sýna háðslega framkomu fangavarða við Saddam við aftöku hans hafa valdið usla. Bush sagði að engu að síður teldi hann að Saddam hefði fengið sanngjörn réttarhöld sem hann hefði sjálfur ekki viljað gefa þeim þúsundum manna sem hann myrti. Á fundinum lýsti Bush því yfir að í næstu viku myndi hann kynna þjóð sinni hver næstu skerf Bandaríkjamanna verða í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×