Erlent

Demókratar fögnuðu Peloci

Peloci er sextíu og sex ára en hún er fyrsta konan sem gegnir embætti forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.
Peloci er sextíu og sex ára en hún er fyrsta konan sem gegnir embætti forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. MYND/AP

Demókratar fögnuðu í gær þegar þingkona þeirra Nancy Peloci varð fyrsta konan til að verða kjörin forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.

Peloci fékk tvö hundruð þrjátíu og þrjú atkvæði sem endurspegla þann fjölda þingmanna sem Demókratar eiga í fulltrúadeildinni en þingmenn Repúblikana eru tvö hundruð og tveir. Peloci sagði samvinnu beggja aðila á þinginu mikilvæga og kjör hennar mikilvægan þátt í baráttu kvenna fyrir réttindum sínum. Demókratar hafa verið í minnihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í 12 ár og því er að vænta breytinga á þinginu. Fyrsta málið á dagskrá þingsins beinist gegn óeðlilegri hagsmunagæslu þrýstihópa gagnvart þingmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×