Erlent

Börn hengdu sig eftir aftöku Saddams

Saddam við réttarhöldin yfir honum.
Saddam við réttarhöldin yfir honum. MYND/AP

Grunur leikur á að aftaka Saddams Hússeins og myndskeið sem birt hefur verið af hengingunni hafi valdið því að þrjú börn og unglingar hafa hengt sig í vikunni. Talið er að tvö barnanna hafi einungis verið að leik með þessum hræðilegu afleiðingum en þriðja stúlkan, á táningsaldri, varð harmþrungin við dauða Saddams og vildi fylgja honum.

Indverska stúlkan Moon Moon varð harmi slegin við að sjá myndirnar af fyrrverandi forseta Íraks. Að sögn fjölskyldu hennar neitaði hún að borða og sagði að Saddam hefði verið þjóðhetja. Fjölskyldan tók hana ekki alvarlega þegar hún sagðist vilja finna sársauka Saddams við aftökuna en svo kom fjölskyldan að henni þar sem hún hafði hengt sig í snöru úr þakviftunni.

Tvö börn, annað í smábænum Webster í Texas en hitt í Pakistan, hafa einnig hengt sig í vikunni. Talið er að þau hafi verið að leika eftir myndbandsupptöku af aftöku Saddams án þess að gera sér grein fyrir afleiðingunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×