Baird hlakkar ekki til að mæta Eiði Smára 10. september 2007 15:22 NordicPhotos/GettyImages "
Já, ég er það að minnsta kosti," sagði Chris Baird fyrirliði Norður-Íra og hló í samtali við Vísi í dag þegar hann var spurður hvort hann óttaðist Eið Smára Guðjohnsen ef hann næði að spila leik Íslands og Norður-Írlands í undankeppni EM á miðvikudagskvöldið. "Eiður er frábær leikmaður sem hefur leikið með úrvalsliðum og hann fór nú frekar illa með okkur í fyrri leiknum ef ég man rétt, þar sem hann skoraði mark og átti þátt í hinum. Ég veit ekki hvort hann verður með eða ekki, en ef hann spilar, verðum við að halda honum niðri," sagði Baird á blaðamannafundi síðdegis, en hann er varnarmaður Fulham í ensku úrvalsdeildinni. Hann á von á erfiðum leik gegn íslenska liðinu. "Íslenska liðið er hávaxið og sterkt og úrslitin gegn Spánverjum sýna að við eigum von á erfiðum leik. Við gefum ekkert upp um það nákvæmlega hver leikaðferð okkar verður - nema hvað við ætlum að spila okkar leik og reyna að vinna. Það var rosalega svekkjandi að tapa leiknum gegn Lettum og því verðum við að ná okkur á réttan kjöl núna af því við eigum mjög erfiða leiki fyrir höndum í keppninni," sagði Baird, sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í leiknum við Letta í Riga. Hann á ekki von á því að Nigel Worthington þjálfari geri miklar breytingar á hópnum þó hann hafi hótað því eftir tapið í síðasta leik. "Ég á ekki von á að hann breyti mjög miklu, en þeir sem detta út ef svo verður verða væntanlega vonsviknir. Við áttum að vinna leikinn gegn Lettum á laugardaginn, en við getum huggað okkur við að við erum enn inni í myndinni vegna úrslita eins jafnteflisins sem Íslendingar gerðu við Spánverja," sagði Baird.
Enski boltinn Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Sviss - Ísland | Leikur sem verður að vinnast Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti „Góðu hliðarnar eru helvíti góðar“ Handbolti Bjarki Már reyndi að taka Óðin á taugum Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Myndasyrpa: Ekkert stopp á stemningunni í Malmö Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira