Erlent

Freista þess að ná samkomulagi í Darfur

Um sjö þúsund hermenn frá Afríkubandalaginu eru í Darfur.
Um sjö þúsund hermenn frá Afríkubandalaginu eru í Darfur. MYND/AFP

Talsmenn uppreisnarmanna í Darfur eru væntanlegir til Tansaníu í dag til þess að taka þátt í viðræðum sem Sameinuðu þjóðirnar standa fyrir. Uppreisnarmennirnir ætla að freista þess að ná samkomulagi sín í milli áður en formlegar friðarviðræður við stjórnvöld í Súdan hefjast.

Friðarviðræðurnar hafa fengið aukið vægi í kjölfar frétta af ákvörðun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á þriðjudag um að senda 26 þúsund manna friðargæslulið á svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×