Erlent

Blendin viðbrögð við nýrri þjóðstjórn Palestínumanna

Þjóðstjórn Palestínu svarin í embætti í dag.
Þjóðstjórn Palestínu svarin í embætti í dag. MYND/AP

Evrópusambandið fagnaði í dag myndun þjóðstjórnar á heimasvæðum Palestínumanna en lýsti því um leið yfir efasemdum um stefnu hennar og aðgerðir. Bandaríkjamenn tóku hins vegar dýpra í árinni og sögðu þá stefnu stjórnarinnar að áskilja sér rétt til að berjast gegn Ísrael vekja ugg.

Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin drógu mikið úr stuðningi við Palestínumenn í fyrra þegar Hamas-liðar sigruðu í þingkosningum í Palestínu en Hamas hefur hingað til neitað að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis.

Í yfirlýsingu frá Evrópusambandinu í dag í kjölfar þess að þjóðstjórnin var svarin í embætti lýsir sambandið sig reiðubúið til samstarfs við löglega palestínska heimastjórn sem byggi stefnu sína á hugmyndum kvartettsins svokallaða, en það eru ESB, Bandaríkin, Sameinuðu þjóðirnar og Rússland.

Munu Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands sem fer með forystu innan ESB þessi misserin, og Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, funda með Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á mánudag um hina nýju þjóðstjórn Palestínu.

Bæði Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa bent á að hin nýja ríkisstjórn hafi ekki uppfyllt þrjú skilyrði sem kvartettinn hafi sett: viðurkenningu á tilverurétti Ísraelsríkis, að hafna ofbeldi og því að samþykkja fyrri friðarssamninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×