Erlent

Árleg verðbólga 3.700 prósent

Árleg verðbólga í Simbabve í Afríku var 3.700 prósent í lok apríl, sú langmesta í heiminum. Vöruverð í landinu tvöfaldaðist á milli mánaða.

Robert Mugabe, forseti Simbabve, skrifaði á mánudag undir lög um verð- og launastýringar sem ætlað er að lækka verðbólguna. Þeir sem brjóta reglurnar þurfa að sitja í fangelsi í allt að fimm ár.

Atvinnuleysi í landinu er nú um 80 prósent, og hefur aldrei verið hærra. Spillingu og slæmri stjórnun er kennt um þetta versta efnahagsástand landsins síðan það fékk sjálfstæði árið 1980.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×