Erlent

Rasmussen heimsækir danska hermenn í Afganistan

MYND/AP

Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, kom í morgun í heimsókn í Bastion-búðirnar í Helmand-héraði í Afganistan þar sem danskir hermenn í landinu halda til. Rasmussen er nú í heimsókn í Afganistan og fundaði í gær með Hamid Karzai, forseta Afganistans.

Áætlað er að Rasmussen ávarpi dönsku hermennina nú á eftir en þeir eru tæplega 450 talsins. Rasmussen sagði í gær að ekki væri ætlunin að kalla hermennina heim á næstunni heldur fjölga í liðinu upp í 640 til þess að hjálpa stjórnvöldum í Afganistan að takast á við uppreisnarmenn talibana.

Fjórir danskir hermenn hafa látist í Afganistan frá árinu 2002, sá síðasti fyrir tæpum þremur vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×