Erlent

Ísraelar ætla að grípa til aðgerða

Utanríkisráðherra Ísraels, Tzipi Livni, sagði í morgun að nú væri komið nóg og að Ísrael myndi ákveða á næstu dögum til hvaða aðgerða yrði gripið til að koma í veg fyrir eldflaugaárásir Palestínumanna á Ísrael. Hún sagði fréttamönnum að ríkisstjórnin myndi hittast á sunnudaginn kemur og að þá yrðu ákvarðanir teknar.

Hún vildi þó ekkert segja til um eðli þeirra. Að lokum bætti hún því við að hófsamir Palestínumenn væru kannski ekki nógu sterkir til þess að binda endi á ofbeldið og það þyrfti að beita herská öfl í Palestínu þrýstingi.

Ísrael hefur undanfarna tvo daga gert loftárásir á stöðvar Hamas á Gaza svæðinu og hafa að minnsta kosti átta látið lífið í þeim aðgerðum. Þá hafa þeir einnig sent herlið á norðurhluta svæðisins en ísraelski herinn sagði að  um varnaraðgerðir væri að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×