Erlent

Bruni varpaði skugga á hátíð

Norðmenn héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan í gær.
Norðmenn héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan í gær. MYND/Getty

Norðmenn héldu þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan í gær í blíðskaparveðri. Mikið var um hátíðahöld um allt land en það var á þessum degi árið 1814 sem Norðmenn fengu sjálfstæði frá Dönum.

Það varpaði þó skugga á gleðina að eldur kviknaði í þremur sögufrægum húsum í miðbæ Þrándheims aðfaranótt þjóðhátíðardagsins. Húsin, sem eru með elstu húsum bæjarins, eru mikið skemmd eftir brunann en rífa þurfti hluta þeirra til þess að ráða niðurlögum eldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×