Erlent

Norður-Kórea láti af kjarnorkuáætlunum

AP

Samningamenn sex ríkja í viðræðum um kjarnorkumál Norður-Kóreu hafa náð samkomulagi, sem bíður nú lokasamþykkis ríkisstjórna ríkjanna.

Þetta sagði Christopher Hill aðal samningamaður Bandaríkjastjórnar eftir að viðræðunum lauk í gærkvöldi. Samkomulagið bíður nú samþykki ríkisstjórna sexveldanna.

Hill vildi ekki gefa upp smáatriði samningsins en sagði þó að leyst hafði verið úr þeim ágreiningsefnum sem virtist ætla að stranda á eftir helgina en þá kröfðust Norður-Kóreumenn það mikillar aðstoðar í orkumálum að sexveldin vildu ekki semja. Samningamennirnir hittast aftur á fundi í dag til að binda endahnút á viðræðurnar.

Löndin sem eiga aðild að viðræðunum eru Norður- og Suður-Kórea, Japan, Kína, Rússland og Bandaríkin. Nú lítur semsagt út fyrir að Norður-Kórea hætti við kjarnorkuáætlun sína og láti eyða þeim kjarnavopnum sem þeir þegar eiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×