Erlent

Enginn lokafrestur settur

Tveir norður-kóreskir hermenn horfa stíft suður yfir landamærin. fréttablaðið/AFP
Tveir norður-kóreskir hermenn horfa stíft suður yfir landamærin. fréttablaðið/AFP

Sex ríkja viðræðum um kjarnorkumál Norður-Kóreu lauk í fyrradag án þess að Norður-Kóreumönnum hafi verið settur neinn lokafrestur til að gera kjarnorkubúnað sinn óstarfhæfan.



Christopher Hill, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagðist þó telja að Norður-Kórea gæti lokið þessu verkefni fyrir árslok.

Fyrir viku lokuðu Norður-Kóreumenn eina kjarnaofni landsins.



Auk Norður-Kóreu og Bandaríkjanna eiga Rússland, Kína, Japan og Suður-Kórea aðild að viðræðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×