Dýrmætur sigur hjá Tottenham 9. desember 2007 17:41 Dimitar Berbatov átti frábæran leik hjá Tottenham í dag og hér er hann í baráttu við Micah Richards hjá City NordicPhotos/GettyImages
Tottenham vann í dag þýðingarmikinn sigur á Manchester City 2-1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þá lyfti Bolton sér af fallsvæðinu með sannfærandi sigri á Wigan 4-1. Pascal Chimbonda kom heimamönnum í Tottenham yfir í fyrri hálfleik með vægast sagt umdeildu marki þegar hann blakaði boltanum í netið eftir fyrirgjöf og leit þar af leiðandi út fyrir að vera rangstæður. Varamaðurinn Rolando Bianchi hjá City setti svip sinn á leikinn og skoraði aðeins nokkrum augnablikum eftir að honum var skipt inn á. Hafi City ætlað sér að stela sigrinum eftir það urðu þær vonir að engu þegar Stephen Ireland lét reka sig af velli fyrir glórulausa tæklingu á Kóreumanninn Lee. Skömmu síðar nýtti Tottenham sér svo liðsmuninn þegar varamaðurinn Jermaine Defoe þrumaði boltanum í netið eftir að fyrirgjöf hafði hafnað í stönginni. Defoe fór illa með tvö dauðafæri undir lok leiksins og það sama gerði Darren Bent í fyrri hálfleiknum. Þetta var aðeins þriðji sigur Tottenham í deildinni í vetur og nægði hann til að koma liðinu í 13. sæti deildarinnar, en City er í 6. sætinu. Bolton var á skotskónum í grannaslag sínum gegn Wigan og sigraði 4-1. Bæði lið hafa verið í miklum erfiðleikum á leiktíðinni, en Bolton er bú komið af helsta hættusvæðinu í deildinni eftir sigurinn. Paul Scharner opnaði markareikninginn með klaufalegu sjálfsmarki á annari mínútu þegar hann skallaði knöttinn í eigið net, en Denny Landzaat jafnaði metin fyrir Wigan. Nicolas Anelka brenndi af vítaspyrnu hjá Bolton en bætti fyrir það með glæsilegri sendingu á Kevin Nolan sem skoraði annað mark Bolton. Það voru svo mörk frá Anelka og Kevin Davis sem kláruðu leikinn. Bolton lyfti sér í 14. sæti deildarinnar með sigrinum en Wigan er í því 19. og næstneðsta.
Enski boltinn Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Handbolti Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Enski boltinn Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Fleiri fréttir Í beinni: Bournemouth - Liverpool | Salah stimplar sig aftur inn í enska Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Sjá meira