Erlent

Fólk býr nánast í opnu fangelsi

Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra sýndur múrinn við Betlehem. Tom White, fulltrúi flóttamannaaðstoðar SÞ í Palestínu, til hægri.
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra sýndur múrinn við Betlehem. Tom White, fulltrúi flóttamannaaðstoðar SÞ í Palestínu, til hægri.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra lauk heimsókn sinni til Ísraels og sjálfstjórnarsvæða Palestínumanna á föstudag í Betlehem, sem nú er umkringd „öryggisgirðingunni“ sem Ísraelar hafa reist á Vesturbakkanum og gagnrýnendur kalla aðskilnaðarmúrinn.



Í Betlehem heimsótti ráðherrann miðstöð fyrir krabbameinssjúk börn, sem notið hefur styrkja frá Íslandi, og flóttamannabúðir þar sem 4.500 Palestínumenn búa. Þar átti hún meðal annars fund með fulltrúum kvennasamtaka búðanna og var upplýst af fulltrúum flóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna á hernumdu svæðunum, UNRWA, um áhrif múrsins á líf Palestínumanna.



„Þetta hefur sterk áhrif á mann, að sjá með eigin augum hvernig fólk hér býr nánast í opnu fangelsi,“ tjáði Ingibjörg Sólrún einstæðri tíu barna móður í búðunum sem hún heimsótti.



Ferð ráðherrans og fylgdarliðs um Mið-Austurlönd lýkur nú um helgina með heimsókn til Jórdaníu.



Í dag, sunnudag, verður farið í heimsókn á sjúkrahús í Amman, þar sem hlúð hefur verið að flóttamönnum frá Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×