Erlent

Framdi sjálfsmorð eftir ákvörðun bæjarstjórnar

Atvinnurekandi í Clarksville, Tennessee í Bandaríkjunum framdi í gærkvöld sjálfsmorð eftir að bæjarstjórn neitaði að verða við kröfu hans um að endurskilgreina heimili hans sem atvinnuhúsnæði.

Ronald Ward, sem átti rakarstofu sem hann starfrækti á heimili sínu hafði sagt bæjarstjórninni að hann yrði gjaldþrota yrði það skki skilgreint sem atvinnuhúsnæði. Við það hefði hann getað veðsett hús sitt upp á nýtt og komist undan erfiðum skuldum sem voru að buga hann.

Eftir að ljóst var að bæjarstjórnin hafði greitt atkvæði gagn tillögunni stóð Ward upp á fundinum og sagði: "Þið hafið gert mig gjaldþrota....ég er farinn."

Því næst tók Ward upp skambyssu og skaut sig í höfuðið.

Bæjarstjórinn í Clarksville sagði bæjarbúa miður sín vegna málsins. Hann segir að bæjarstjórnarfundir verði ekki haldnir aftur á sama stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×