Erlent

Búa sig undir árás á Bandaríkin

Talið er að al-Qaida sé að undirbúa sig undir árás á Bandaríkin.
Talið er að al-Qaida sé að undirbúa sig undir árás á Bandaríkin. Mynd/ AFP
Al-Qaida samtökin undirbúa sig nú undir árás á Bandaríkin og hafa náð þeim styrk sem þau þurfa til árásar, samkvæmt leyniskýrslunni sem rædd var í dag

Leyniþjónustumenn hafa miklar áhyggjur af því að l-Qaida geti notað aðstöðu sína við landamæri Pakistan og Afganistan til árása.

Í leyniskýrslunni kemur jafnframt fram að talið sé að Al-Qaida sé enn að þróa efna-, lífefna- og kjarnorkuvopn og muni nota þau ef tækifæri gefast. Þá er talið að Al-Qaida muni reyna að gera árás á Bandaríkin innan landamæra þeirra. Bandarískir embættismenn hafa tjáð áhyggjur sínar af því að Evrópubúar geti of einfaldlega komist til Bandaríkjanna vegna samninga sem leyfa þeim inngöngu án þessa að fá vegabréfsáritun. Í skýrslunni eru einnig reifaðar áhyggjur af því að einstaklingar innan Bandaríkjanna séu að taka upp stefnu öfgasinnaðra múslima.

Háttsettir embættismenn í Bandaríkjunum segja að í skýrslunni sé ítarleg umfjöllun um mögulegar ógnir sem steðji að Bandaríkjunum og að í henni fælust hugmyndir um samvinnu fjölmargra öryggisstofnana, svo sem Leyniþjónustunnar, Alríkislögreglunnar, Heimavarnarliðinu og Miðstöð um gagnhryðjuverkaáætlanir.

Þjóðaröryggisráðgjafar funduðu í Hvíta húsinu í dag til að ræða leyniþjónustumál og önnur mál tengd gagnhryðjuverkum. Gert er ráð fyrir að leyniskýrslan sem er í vinnslu verði opinberuð í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á þriðjudaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×