Erlent

Sleppt úr varðhaldi

Marwa Asha hefur verið látin laus en eiginmaður hennar er enn grunaður. Myndin sýnir Asha ásamt barni þeirra.
Marwa Asha hefur verið látin laus en eiginmaður hennar er enn grunaður. Myndin sýnir Asha ásamt barni þeirra. Mynd/ AFP

Kona sem var handtekinn vegna gruns um aðild að bílasprengjum í London og flugvellinum í Glasgow hefur verið látin laus, samkvæmt heimildum breska ríkisútvarpsins. Hin 27 ára gamla Marwa Asha var handtekin ásamt eiginmanni hennar á M6 hraðbrautinni í Chesire 30 júní síðastliðinn.

Íraskur læknir, Bilal Abdulla, hefur verið ákærður fyrir aðild að tilræðinu. Réttur í Westminister úrskurðaði hann í gæsluvarðhald síðastliðinn laugardag. Hann er ákærður fyrir samsæri um að valda sprengingunum.

Lögreglan er enn að yfirheyra fjóra aðra aðila sem handteknir voru vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×