Erlent

Mourinho handtekinn út af hundi

MYND/Reuters

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var handtekinn í gærkvöld eftir að hafa lent í deilum við lögregluna um hundinn sinn.

Eftir því sem fram kemur í breskum miðlum fór lögregla heim til hans til að sækja hundinn og færa í sóttkví þar sem talið var að hann hefði verið fluttur úr landi og aftur inn í það án þess að hann hefði fengið viðeigendi sprautur.

Mourinho vildi hins vegar ekki láta hundinn af hendi og var hann því handtekinn fyrir að hindra störf lögreglunnar. Ekki kom þó til þess að hann þyrfti að dúsa í fangaklefa því honum var sleppt með viðvörun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×